|
|||||||||||||||||||
|
23.2.04
Helgin hefur farið í að vera með hausverk og að gera skýrslu í Lífeðlislegri sálfræði, upphaflega hélt ég að þetta væri skýrsla dauðans en í ljós hefur komið að þetta er bara alls ekkert svo leiðinlegt þegar maður kemur sér inn í þetta. Ég hef bara lúmskt gaman af sjónsviði og viðtakaskyni. Skýrslan er sem sagt um skynjun.
Ég tók mér samt frí frá náminu í gærdag og við fórum til mömmu í árlegt bollukaffi en það er siður heima hjá mér að borða bollur á sunnudeginum og taka restin með sér í nesti daginn eftir! Mjög svo sniðugt kerfi sem sagt! Við höfðum það svo bara gott fyrir framan sjónvarpið fram eftir kvöldi og Sveinbjörn gerði sér svo lítið fyrir og keypti dýrindis American Style handa liðinu og færði okkur mömmu jafnframt rós - hann er svo sætur þessi elska! Hann ætlaði að bjóða mér á dansnámskeið en það datt upp fyrir sökum slappleika okkar og einstakrar leti. Við förum bara seinna! Óska öllum þeim sem settu íslandsmet um helgina innilega til hamingju en það eru bara 6 stykki! Hafdís skrifaði klukkan 1:15 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||