24.2.04
Heimsóknarfjöldinn er að fara upp úr öllu valdi - ég er eðlilega mjög lukkuleg með það. Þætti vænt um ef þeir sem lesa síðuna mína án minnar vitundar skrifuðu í gestabókina!

Ég var upptekin af skýrsluskrifum í gær og síðan fór ég í fyrsta skipti á æfingu í marga daga og losaði mig við smá af aukaorku. Var alveg að springa á sunnudagskvöldið - úff.

Reyndi að skrifa smá pistil hérna í gær en blogger var ekki alveg sammála því og að lokum gafst ég upp!

Annars er ég að fara í tíma svo að skemmtilegheit verða að bíða betri tíma...

P.S ég þvoði nokkrar vélar í morgun, vaskaði upp og gekk frá blöðum og dóti. Datt í hug að áhugasamir vildu heyra af þessu ;)

Hafdís skrifaði klukkan 1:11 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli