15.2.04
Ég keppti í fyrsta skipti í rúmlega ár í gærdag. Ég var búin að koma með miklar yflrlýsingar um að ég ætlaði bara að keppa mér til gleði og ánægju og hafa gaman af. Sú gleði var þó skammvinn þar sem keppnisskapið var ekki lengi að brjótast upp á yfirborðið. Ég stóð mig bara ágætlega, stal einu bronsi og varð svo 5. í þrístökki en þá var bossinn aðeins farin að síga og mín orðin heldur þreytt. Var alveg búin að gleyma hvað það er erfitt að keppa!

Við Sveinbjörn höfðum það svo bara gott í gærkvöldi, horfðum á Fighting Temptation í tölvunni og á hálfan Sinbad! Sveinbjörn var svo sniðugur að ná í nokkrar vel valdar myndir. Reikna með að næstu dagar fari í að horfa á Lost in Translation, Cold mountain, The Last Samurai, LOTR ROTK og margar aðrar góðar.

Annars vil ég bara óska Silju innilega til hamingju með íslandsmetið í 200 innanhúss - 24.26, glæsilegt!

Hafdís skrifaði klukkan 1:07 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli