11.2.04
Ég hlýt að komast áfram í flugfreyjuprófunum - sér í lagi ef ég sendi þeim póst til að segja þeim frá því sem ég gerði í dag.

Í fyrsta lagi var ég ekki bara pæjulega klædd, vel tilhöfð og ilmandi með krullað hár og með fallegar spennur heldur eyddi ég mest öllum deginum í að mála vinkonu mína og dúllast í hárinu á henni - hve kvenleg er ég?

Áður en ég fór var ég búin að hafa til æfingadót handa mér og ástmanni mínum og koma því haganlega fyrir í aftursætinu og íþróttaskórnir voru á botni töskunnar. Auk þess var ég búin að hafa heilsudrykki til í brúsa og koma vítamínunum fyrir.

Ég er greinilega mjög skipulögð, æfð í að pakka niður og get greinilega verið mjög hugguleg og þjónustulipur þegar ég tek mig til - hvað þarf meira til?

Ég þarf reyndar greinilega að æfa mig aðeins í þýskunni en...ég hringi bara í Sigmar frænda í Þýskalandi reglulega!

Sigmar: Er Notausgang, neyðarútgangur á þýsku? Sætti mig ekki við það fyrr en ég heyri það frá honum ; )

Í dag hef ég komist að því að ég klikkaði á 2 spurningum af þessum 20 - alla vega af þeim sem ég man! Held að það sé bara ágætt! Efast reyndar um að ég hafi verið jafn hjá í tungumálunum en...

Þarf víst að hunskast í bólið, skóli kl.8:40

Hafdís skrifaði klukkan 12:29 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli