4.2.04
Ég er búin að finna mjög hentugt starf fyrir mig í framtíðinni. Það bíður upp á mikið af ferðalögum sem mér finnst skemmtileg. Ég kynnist nýjum menningum - bara skemmtilegt. Ég hitti mikið af fólki og það finnst mér skemmtilegt. Ég get boðið fólki heim til mín reglulega og haldið boð - mér finnst það skemmtilegt. Þá þarf ég reyndar að vera soldið mikið fín en það er líka bara skemmtilegt. Ég fæ að knúsa og kyssa börn af og til og það finnst mér mjög skemmtilegt. Allir vita hver ég er og þegar ég á afmæli, er flaggað. Er til eitthvað betra en það?
Frú Hafdís Ósk Pétursdóttir forseti Íslands hljómar líka mjög vel. Það eina sem stendur í vegi mínum er titilinn á Sveinbirni greyinu. Hvað myndi hann vera? Sveinbjörn Jónsson forsetaherra?

Hugsa að sálfræðimenntunin nýtist mér vel í þessum efnum!

Ég kann að koma fyrir mig orði og á ekki í miklum vandræðum með að halda ræður - ég er jú einu sinni búin með námskeið í tjáningu og samskiptum. Þegar ég þarf að skrifa samúðarkort - hringi ég bara í mömmu! Eða nei, ég leyfi mömmu náttúrulega að búa hjá mér á Bessastöðum - frítt.
Er ég ekki góð dóttir? Kannski pabbi fái líka að koma með - það eru jú einu sinni fínar skokkleiðir í kringum Bessastaði og það er nálægt sjó og þar vilja fiskar víst vera. Hann getur líka haft ofan fyrir Sveinbirni og passað að hann geri ekki of mikið grín að forsetanum!
Æ, Sveinbjörn er ekki nógu alvarlegur í starfið og e.t.v ekki ég heldur.
En hvernig væri að hafa hressan forseta sem kann að skemmta fólki og hafa gaman.
Ég kann líka að baka...

Mynduð þið ekki kjósa mig?

Hafdís skrifaði klukkan 11:59 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli