11.2.04
Ég elska ruslakalla - þeir eru yndislegir allir saman.

Mér finnst ofsalega gaman þegar þeir koma snemma á mánudagsmorgnum og draga tunnurnar út úr ruslageymslunni, raðað þeim harkalega upp og henda þeim svo upp í bíl. Svo er ekki verra þegar þeir drösla tunnunum aftur inn í ruslageymslu og henda þeim upp við veginn. Best finnst mér þó þegar ruslabíllinn sjálfur bakkar inn götuna - það er uppáhalds hlutinn minn.

Í þessari viku var þó tvöföld ánægja, ekki nóg með að þeir kæmu á mánudagsmorguninn - daginn sem ég mæti ekki í skólann fyrr en 13:15, heldur komu þeir líka eftir hádegi í dag og tóku sig til og þvoðu ruslatunnurnar með háþrýsidælu! Tunnurnar eru allar aðrar og örugglega allir ánægðir sem ætluðu að vera heima að læra í dag!

Ég elska skipulagið á þessari borg!

Hafdís skrifaði klukkan 9:15 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli