13.2.04
Ég á ekki að vera mikið falleg næstu daga/vikur/mánuði.

Þannig er mál með vexti að seinustu daga hef ég ekki náð að sofa almennilega. Það er alltaf eitthvað sem truflar fegurðablundi mína. Ef það eru ekki ruslakallar, veðrið, ógleði, óþolinmæði eða ólæti maka míns eru það nágrannarnir. Þau á efri hæðinni eru alltaf að færa einhver húsgögn, mjög oft einhvern stól fram og tilbaka og þá helst seint á kvöldin og snemma á morgnana! Í fyrri nótt voru þau að rífast og þar sem glugginn okkar var opinn heyrði Sveinbjörn frekar vel í þeim og það hélt fyrir honum vöku - ég slapp reyndar í það skiptið.
Í nótt sofnaði ég ótrúlega fljótt og svaf á mínu græna alveg fram til 5, þá vaknaði ég við Röskva svaf í heila öld, heila öld, heila öld - nokkur vers! Þá voru þetta einhverjir sem voru í kosningavökum og komu svona borubrattir í húsið og sungu og trölluðu.
Sveinbjörn athugað hvar þessir vitleysingar voru staddir og þá voru þeir í íbúð 203 en við búum í 201! Þeir spiluðu tónlist, fengu einhverjar gellur í heimsókn sem gengu harkalega um á pinnunum og töluðu mikið og hátt saman. Við urðu eðlilega mjög pirruð og gátum ekki sofið fyrir hávaða!
Eftir nokkra stund þögnuðu þeir og við héldum að garðprófastur hefði loksins unnið vinnuna sína og þaggað niður í hávaðaseggjunum. Gleðin var þó skammvinn þar sem tónlistin hækkaði og gleðin samhliða því. Ég er ekkert skárri en allir hinir og vonaði að einhver annar færi til að biðja þá um að sýna smá tilitsemi svona kl.6 á virkum degi. Stelpa af fyrstu hæð fór síðan upp um 6 leytið og bað þá/þau um að hafa hljótt. Þessari beiðni hennar var sinnt og yndislega þögnin tók við. Enn og aftur var gleðin skammvinn þar sem nágranni okkar á efri hæðinni lét klukkuna sína á ,,snooze" í tuttugu mínútur frá því kl.6:30. Sveinbjörn gafst þá upp og fór fram og fékk sér að borða! Ég náði að leggja mig með hléum til 9 og er því nokk hress miðað við að vera vakandi í 2 tíma í nótt og sofna tæplega 1! Ætli ég endi ekki á því að sofna á bókunum í dag - reyndar kann ég ekki að leggja mig á daginn og því verð ég örugglega bara það þreytt að ég næ engu inn í hausinn á mér.
Verð nefnilega að vera súper-dúper dugleg að læra í dag! Próf á morgun og svo keppni = sehr góður dagur.

Í nótt saknaði ég þess næstum því að sofa í næsta herbergi við systur mína sem vaknar ekki við klukkuna sína og sofnar við tónlist með leiðinda bassa. Það var eiginlega skárra en Röskva svaf í heila öld!

Ég sem er að vinna í því að sýna mína innri fegurð - það gengur ekki ef ég næ ekki að sofa almennilega á næturna!
Missionið hjá mér er því að læra að ganga með eyrnatappa og að lokum að sofna með þá!

Hafdís skrifaði klukkan 12:30 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli