9.2.04
Þá er inntökuprófi mínu hjá Icelandair lokið. Spurningar um hver höfuðborgin í Kenýa, hver stærsta eyja japans væri, hvaða íþrótt Annikka Sorenstam stundaði, hver væri upplýsingafulltrúi Icelandair, Hvar EM var haldið, hver sé ríkissáttasemjari, hver hafi verið valinn maður ársins af Frjálsri verslun, hver sé samgönguráðherra, hvað gengi Evrunnar sé, hver hafi skrifað leikritið Sporvagninn girnd sem nú er verið að sýna í Borgarleikhúsinu og aðrar áhugaverðar áttu hug minn allan fyrr í kvöld. Síðan reyndi ég að sýna færni mína í ensku, þýsku og dönsku - lét vera að sýna færni mína í frönsku og spænsku þar sem hún er af MJÖG skornum skammti og lét vera að skrifa ritgerð á einhverju öðru tungumáli en þessum 5 sem ég taldi upp að framan - ég mátti ekki skrifa á íslensku. Það sóttu einungis 1100 manns um starf svo að líkurnar á því að tungumálaskussi eins og ég komist áfram eru hverfandi. Ég vona samt það besta.
Á staðnum voru líka mjög margar sérlega glæsilegar stúlkur og nokkrir myndarlegir piltar. Ég skar mig út á einn hátt, ég var sú eina sem ekki var á pinnahælum ;)

Þetta var samt bráðskemmtileg lífsreynsla og gott að rifja tungumálakunnáttuna upp svona öðru hverju. Það kom mér á óvart hvað ég mundi í þýsku og þakka ég hér með frænda mínum og frændsystkinum í Þýskalandi kærlega fyrir að tala mikið þýsku í kringum mig. Þó vafðist eitt fyrir mér! Hvernig er neyðarútgangur á þýsku? Ég sagði að það væri Ausgang en einn möguleikinn var Notausgang og annar Not og sá þriðji Eingang. Þýskiséní sýnið snilli ykkar!

Þess ber þó að geta að sökum mikillar snyrtimennsku og lélegrar þjónustu á Nestistöð Esso í Ártúni fékk ég ekkert að borða fyrir prófið! Var of mikið að vanda mig við að vera sæt!

Ælta að kíkja aðeins í bók áður en CSI byrjar - eða þá að ég horfi bara aðeins á SURVIVOR.


Hafdís skrifaði klukkan 9:32 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli