2.2.04
Þá er enn ein vinnuvikan gengin í garð - ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Ég hef heldur aldrei skilið afhverju helgin er ekki þrír dagar og vinnuvikan 4 - það yrði sanngjarnari skipting.
Ég gerði heiðarlega tilraun til að vera dugleg að læra í gær, þó að ég hafi ekki náð takmarki mínu var ég duglegri í gær en alla hina dagana til saman - húrra fyrir mér.
Við Sveinbjörn fórum svo og fylgdumst með Meistaramótinu í Fífunni og glöddumst mikið eins og sjá má á pistli mínum hér fyrir neðan.
Mamma var síðan svo góð að bjóða okkur í fisk í gærkvöldi sem bjargaði alveg deginum. Við höfðum það síðan bara gott fyrir framan sjónvarpið þar til tími var kominn til að halda áfram lestri.

Nágrannar okkar eru í einhverju bandalagi um að vera háværir þessa dagana. Þau sem búa fyrir ofan okkur eru annað hvort meiri brussur en ég eða bara einstaklega hávær - jafnvel bæði. Þau gera í því að missa hluti í gólfið núna, skella hurðum og klósettinu og bara eru með læti. Ég er ekkert sérlega ánægð með þessa nýju stefnu hjá þeim og ef þetta heldur áfram sem horfir þá fer ég að gera eitthvað róttækt í málunum.
Efast um að þau hafi einhvern tímann búið fyrir neðan einhvern!

Æ, ég á eftir að lesa svo mikið. Verð víst að halda áfram!

Hafdís skrifaði klukkan 11:56 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli