19.2.04
Alveg týpískt - alltaf þegar ég hyggst vera dugleg hamlar veðrið mér. Var svo búin að ákveða að fara út að skokka í morgun þar sem ég missti af æfingu í gær vegna jakkafatakaupa og saumaklúbbs en þegar veðrið er svona er ekki séns að letibrækur eins og ég hætti sér út úr húsi!
Ég þoli ekki svona rok og rigningu, maður verður svo latur og nennir ekkert að fara út svo er líka svo leiðinlegt að skokka í þessu þar sem maður getur nánast hlaupið á staðnum. Vonandi verður búið að lægja í kvöld svo að ég geti skokkað almennilega af mér spikið fyrir morgundaginn en þá er einmitt árshátíð Verkfræðinema!
Ég verð á borði með heiðursgestinum sjálfum, forstjóra Opinna Kerfa og frú, ég þekki hina á borðinu jafn vel og því verður áreiðanlega súper stuð hjá mér að tala við sjálfa mig ;) Ég hugsa að það verði mun skemmtilegra ef ég drekk bara dáldið mikið. Reyndar hef ég ekki drukkið í langan, langan tíma og því reikna ég með að borðvínið verði nóg fyrir mig ;)

Ég hef annars nóg að gera á morgun, þarf að mæta í tvo verklega tíma, fara í ríkið, sturta mig, greiða, mála og gera sæta. Þarf líka að sækja kjólinn góða og koma mér upp í Hveragerði! Það verður sem sagt stuð á minni á morgun - reyndar vinn ég best undir álagi og lít yfirleitt best út þegar ég hef lítinn tíma til umráða! Vonum bara það besta.
Fékk þá flugu í hausinn í dag að það gæti verið flott að vera með svona hanska sem ná upp að olnbogum við kjólinn. Hvítir og svartir koma bæði til greina. Ef til vill bæti ég því á to-do list fyrir morgundaginn! Get alltaf á mig blómum bætt.
Sveinbjörn er einmitt alltaf að hlægja að tímaskyni mínu - ég held alltaf að ég geti gert svo margt á stuttum tíma!

Einu sinni var ég að undirbúa Þorrablót Grunnskólans á Vopnafirði til hálf sex og ég átti að mæta í miðasöluna kl.6. Sem betur fer bjó ég bara í þriggja mínútna fjarlægð frá Félagsheimilinu og hljóp því bara heim í sturtu, mamma var með kjólinn, maskarann og glossið tilbúið og ég skellti mér bara í fötin og skokkaði aftur niður í félgasheimili. Leit svo ljómandi vel út að ég var kosinn Vinsælasta stelpan ;) Það borgar sig að drífa sig!

Jæja, best að fara í tíma...

Hafdís skrifaði klukkan 1:01 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli