17.2.04
Alveg eins og ný

María vinkona hans Sveinbjörn heiðraði okkur með nærveru sinni í gærkvöldi og eftir heimsóknina erum við skötuhjú alveg eins og ný. Hún er nefnilega hárgreiðslukona og tekur sig stundum til og klippir af okkur lubbann. Núna er ég sem sagt ekki lengur með illa klipptan topp - hún lagfærði handbragðið mitt á augabragði mér til mikillar ánægju. Reyndar fékk ég smá skömm í hattinn og lofaði að gera svona vitleysu aldrei aftur. Ætli ég verði ekki að taka nokkra tíma hjá snillingnum Silju áður.
Við brugðum líka út af vananum og skelltum okkur í einn ljósatíma. Það er rúmlega ár síðan ég fór seinast og því var ég voða varkár og bar á mig krem og lækkaði andlitsljósin fljótt! Það dugði hins vegar ekki til þar sem öll mín viðkvæma húð er rauðþrotin og aum! Ekki gott þar sem harðsperrur dauðans voru loksins að hverfa! Ég gat varla labbað upp og niður stiga í gær og íhugaði nokkrum sinnum að láta mig bara gossa niður á maganum eða eitthvað - hann er hvort eð er með stóru varnarlagi ;) Hætti þó við og lét mig hafa það. Er samt skárri eftir skokk, drillur, teygjur og smá þrek í gær en ég get ekki líst því hvað fyrsti hringurinn var hræðilegur - ji, minn eini.

Hungrið kallar...

Hafdís skrifaði klukkan 12:24 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli