19.1.04
Sumir ekki ALVEG að standa sig hérna.
Háskólanetið utanlands lá niðri í allan gærdag, akkúrat þegar ég var ein heima og með tölvuna. Lét þetta þó ekki fara mikið í taugarnar á mér og skoðaði bara frammistöðu allra krakkanna í IDOL og skemmti mér konunglega.

Við Sveinbjörn ákváðum að eiga nammidag í gær þar sem laugardagurinn okkar var hollustulegur í meira lagi - fyrir utan smávægilegt djamm! Pöntuðum okkur því pizzu á Pizza Hut og létum tengdamömmu vita að við værum á leiðinni! Símastúlkan sagði að við gætum komið eftir svona 20-25 mínútur og þá væri hún tilbúin. Þegar við vorum búin að bíða á staðnum í hálftíma til viðbótar við þessar 25 mínútur fengum við loksins pizzurnar. Þær voru reyndar alveg biðarinnar virði, ótrúlega góðar!

Við fórum siðan á Last Samurai í gær í Álfabakka og sökum þess hvað ég er góð að ryðjast fengum við 7 sæti hlið við hlið fyrir miðjum sal! Frekar góð!
Myndin er tæpir 3 tímar en mér fannst hún fullkomlega þess virði - Tom Cruise er reyndar nógu góð ástæða fyrir mig til að horfa á hvaða mynd sem er ;)
Ég skemmti mér mjög vel og stóð mig vel í að gráta ekki - hreysti!

Í dag rann svo annar skóladagur ársins upp og var bara nokkuð ljúfur. Ég var reyndar ekki eins ánægð að vita hvað bækurnar mínar kosta - 28000 krónur takk fyrir. Heldur stór pakki fyrir fátækan námsmann og næstu jól held ég að það væri tilvalið að gefa mér gjafabréf í bóksöluna. Ég má nú reyndar ekki kvarta mikið keypti ekki mikið af bókum fyrir jól en þær kostuðu nú samt sitt. Það versta er líka að það eru nýjar útgáfur af ÖLLUM bókunum þetta árið og því ekki hægt að kaupa notaðar bækur! Ógeðisógeð.

Skrifaði víst færlu í gestabók á barnaland.is sem allur Vopnafjörður hefur verið að misskilja og mamma hefur verið í óðaönn að neita því að hún sé að verða amma - ég sagði nefnilega að mamma væri farin að telja niður dagana þangað til að ég myndi fjölga mannkyninu en viðeigandi hefði verið að segja ár! Stundum er ekki allt úthugsað hjá mér.

ÉG ER SEM SAGT EKKI ÓLÉTT.

Dreymdi það reyndar í nótt og var hálf rugluð í morgun þegar ég vaknaði! Eins gott að ég er ekki berdreyminn! Hjúkket!
Mér finnst voða gaman að máta börn og leika mér við þau en langar ekki í mitt eigið ALVEG strax - líklega innan fimm ára en ekki mikið fyrr en það! Ég á eftir að læra svo mikið áður!

Þá vitið þið það!

Hafdís skrifaði klukkan 3:38 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli