31.1.04
Ég ætla aldrei aftur á Kaffihús!
Þegar ég var lítil reykti ein af uppáhalds frænkum mínum og það fór mjög svo fyrir brjóstið á mér. Ég notaði hvert tækifæri sem gafst til að predikka yfir henni og reyna að fela sígaretturnar hennar. Það gekk ekki betur en svo að hún reykir enn þann dag í dag.
Það er oft sagt að þeir sem tali hvað mest á móti reykingum endi á því að reykja sjálfir. Ég er gangandi dæmi sem sannar að það er ekki satt! Ég held að heimurinn strumpist fyrr en ég fái mér smók. Alla vega þyrfti að pynta mig all rækilega og líklega myndi ég deyja fyrr en að taka smók. Ég er sem sagt ekki efni í leikkonu.
Ástæðan fyrir þessum skrifum mínum er:

Í gærkvöldi eftir æfingu fór ég eins og vanalega í sturtu, þvoði á mér hárið með dýrindis sjampói sem mamma á og notaði aðra eins dýrindis hárnæringu og var hrikalega ánægð með hvað það var góð lykt af hárinu á mér og mýktin angraði mig ekki heldur.
Þar sem ég leyfði hárinu að þorna af sjálfu sér varð það skemmtilega liðað og fínt. Við fjölskyldan skemmtum okkur yfir lélegum söngvurum, góðum söngvurum og lélegum bröndurum fram eftir kvöldi en um miðnætti fór ég á Kaffibrennsluna til að hitta gellurnar, Ernu, Guðný og Tótu og nýji gæji Tótu fékk að fljóta með! Um að gera að skiptast á að leyfa strákunum að kynnast umræðuefnum stelpna á besta aldri! Hann heitir einmitt Orri.
Eftir stutta stund var ég orðin frekar þurr í hálsinum og þreytt á því að anda að mér ógeðis reyknum. Við reyndum að finna okkur reykminni stað en án árangurs!
Ég kom heim eftir rúma 2 tíma af því að reyna að heyra í stelpunum, drekka vatn svo að hálsinn á mér myndi ekki skrælna. Reyna að finna ferskt loft og að reyna að fá fólk til að labba framhjá stólnum mínum en ekki á hann!
Þegar ég kom heim angaði ég eins og versti öskubakki og íhugaði mjög að fara í sturtu aftur! Nennti því hins vegar ekki og sökum mikillar tillitsemi geri ég nágrönnum mínum það ekki að vera með hávaða eftir kl.1 á næturnar! Vildi að nágrannarnir sem héldu partý hefðu haft minn hugsanahátt og einnig þeir sem keyrðu inn götuna á nagladekkjunum kl.2 til að reyna að finna sér stæði! Þumalputtaregla á Ásgörðum segir að eftir kl.21 á kvöldin sé ómögulegt að finna stæði nema í svona 100m fjarlægð og þetta hélt ég að íbúar vissu!

Mér finnst að það ættu að vera til nokkur kaffihús sem leyfa ekki reykingar og einnig að það ættu að vera skemmtistaðir sem banna þær að sama skapi. Þetta er hreinn og beinn viðbjóður og algjör óþarfi hjá fólki sem vill stytta sitt líf að stytta mit í leiðinni. Ég er svo lukkuleg að eiga enga vini sem reykja, ég á nokkra kunningja og ættingja en þeir virða yfirleitt óskir mínar um að reykja ekki í minni nærveru.
Í mínum húsum og híbýlum verða reykingar ekki leyfðar!

Ég vildi að reykingar yrðu bannaðar með öllu!

Hafdís skrifaði klukkan 11:52 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli