28.1.04
Ég hef lengi velt því fyrir mér afhverju jafnrétti kynjanna er í sumum greinum en ekki öðrum! Það er til dæmis lítill munur á handbolta, fótbolta og körfubolta á milli kynja. Boltarnir eru jú minni en mörkin eru jafnstór. Körfurnar eru aðeins lægri. Í blaki er netið lægra.
Mér finnst mjög skrýtið að mörkin í knattspyrnu séu jafn stór. Það væri mjög eðlilegt að hafa þau minni þar sem konur eru jú lágvaxnari en karlar að meðaltali. Í knattspyrnu kvenna enda leikirnir líka oft 11-7 eða eitthvað á meðan svoleiðis tölur þekkjast vart í knattspyrnu karla.
Í frjálsum eru áhöld léttari, plankarnir styttra frá í þrístökki og grindur lægri. Þetta er mjög eðlilegt þar sem konur eru ekki eins sterkar og geta ekki hlaupið yfir sömu hæðir á grindum (karlagrindin er 107 cm).
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um að breyta sjöþraut kvenna yfir í tugþraut eins og karlarnir fara í gegnum. Þá bætist við 400m hlaup, kringlukast og stangastökk og 800 breytist yfir í 1500. Ég veit ekki um eina konu sem er hrifin af þessu. Reyndar ætti þetta að vera kjörið fyrir Völu okkar Flosadóttir þar sem hún er fjölhæf mjög!
Ég er mjög hlynnt jafnrétti kynjanna en ég er ekki sammála því að allt eigi að vera eins. Mér finnst að konur og karlar eigi að fá sömu laun fyrir sömu störf - það er fáránlegt að laun karla lækki þegar fleiri konur koma í greinina. Mikil umræða er til að mynda innan verkfræðideildar um að innan fárra ára verði verkfræði láglaunastétt þar sem fleiri og fleiri konur útskrifast á ári hverju! Strákum er núna mismunað á verkfræðistofur þar sem stofurnar keppast við að jafna hlutföllin á stofunum og ráða bara konur! Ég er ekkert að kvarta yfir þessu en leyfi mér að velta því upp að innan fárra ára verði til karlmennskufélagið sem vinnur að jöfnum rétti karla á við konur. Staðreyndin er sú að fleiri konur eru í háskólanámi og því er eðlilegt að við verðum ríkjandi á markaðnum.
Er eitthvað óeðlilegt við það að mörk, körfur og áhöld í kvennaíþróttum séu minni og léttari?
Það finnst mér ekki!

Hafdís skrifaði klukkan 3:46 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli