|
|||||||||||||||||||
|
15.1.04
Æfingin í gær tók heldur betur á - einhver þreyta í konunni eftir lyftingaæfingu og massa spretthlaupsæfingu. Var líka með tveimur mjónum og það eitt tekur svakalega á! Afhverju eru ekki flokkar í frjálsum eins og í Boccia, hnefaleikum og flokki fatlaðra. Finnst að það ætti að vera svoleiðis. Þá gæti ég til dæmis verið íslandsmeistari kvenna í flokki kvenna sem eru yfir 170 cm og 80 kg í þyngd eða eitthvað! Takið eftir að talan 80 er dultala yfir mína þyngd, það þarf að nota flóknar stærðfræðiaðgerðir til að finna út rétta tölu!
Fór síðan í saumaklúbb strax á eftir æfingu og það gefur ekki góða raun að borða heita rétti og kökur strax eftir æfingu. Ég var reyndar með eindæmum þreytt og pirruð eitthvað (kemur sjaldan fyrir) og fór því bara snemma heim og hafði það gott upp í sófa. Átti svo í smá erfiðleikum með að vakna í morgun þar sem talan 8 er ennþá ókristileg í mínum augum og dagurinn byrjar í raun ekki fyrr en 11. Það var smá stundatöflubull í morgun svo að helmingurinn mætti í tíma kl.8 en hinn helmingurinn kl.8:40 og í þeim hópi var ég, en tíminn hófst víst kl.8! Ég var því bara í tíma í rúmlega hálftíma og átti svo að vera í gati til 11. Þann tíma nýttum við Guðný í að koma okkur vel fyrir upp í sófa og hún lagði sig svo í svona hálftíma! Ég kann, eins og flestir vita, ekki að leggja mig og hvíldi mig því bara í smá stund og skreið aðeins undir sæng til að hlýja mér. Lífeðlisleg sálfræði beið okkar svo klukkan 11 og ég er næstum því pottþétt á því að þeir tímar eiga eftir að vera strembnir, hann fór alla vega MJÖG hratt yfir sögu. Ég hef reyndar lært margt af þessu áður en það er LANGT síðan og minnið mitt nær ekki einu sinni svo langt aftur í tímann! Er einmitt að fara að kaupa mér bókina svo ég geti byrjað að lesa - ekki veitir af! Gleðin náði hámarki núna áðan þegar námslánin birtust á skjánum, mjög ánægð með það. En ég fékk seinustu einkunina mína á þriðjudaginn - hraðinn á afgreiðslunni kemur MJÖG á óvart! Gaman að eiga pening í smá stund ;) Á morgun sæki ég svo Maríus Pétur frænda minn á leikskólann og við skemmtum okkur fram á æfingu og svo reikna ég með að taka hann með mér á æfingu og leyfa honum að sprikla smá - hann talar víst oft um það að hann þurfi að skreppa á æfingu með Hafdísi. Ég hef einu sinni áður tekið hann með mér og þá var hann ekki kyrr í eina mínútu! Gaman að það sé einhver orkumeiri en ég! Jæja ég þarf að fara að eyða nýfengnum gróða í bækur! Hafdís skrifaði klukkan 1:54 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||