7.12.03
Þú sérð hóp af fólki út á götu að horfa á eitthvað, hvað þurfa margir að vera að horfa til að þú stoppir líka?
Þetta er ein af mörgum spurningum sem ég er að velta fyrir mér fyrir utan stafrófið góða sem enginn virðist skilja mig í!
Rannsakendur hafa rannsakað þetta og í ljós kom að það þarf bara 3, sú tala lækkar þó þegar einhver frægur stendur og horfir út í loftið. Frægur Íslendingur gerði þetta víst einu sinni og það kom fullt af fólki til að horfa með honum og var búið að horfa lengi þegar einhver spurði hann á hvað hann væri að horfa! Þá var hann víst bara að horfa á einhvern reykháf eða eitthvað álíka. Það þarf sem sagt bara eina fræga persónu.

Já, þetta var nú soldið skondið!

Hafdís skrifaði klukkan 11:00 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli