30.12.03
Það snjóaði örlítið í gær og öll borgin fór í panic. Ótrúlegt hvað það virðist sem Reykvíkingar hafi aldrei séð smá snjó áður. Hlógum alltaf að því þegar ég var lítil hvað það þótti fréttnæmt þegar smá snjó kyngdi niður í Reykjavík. Snjórinn sem var í borginni í gær hefði varla talist vera snjór á Vopnafirði. Þar þurfti mun meira til að eitthvað veður skapaðist af. Það er að vísu mun auðveldara að losa við snjóinn þar og auðveldara að labba í vinnuna! Hérna verður allt brjálað!
Við vorum bara á sumardekkjunum í gær en komumst samt frekar auðveldlega út úr stæðinu og lentum ekki í neinum vandræðum við að komast á milli staða. Skiptum nú samt um dekk bara svona til að vera örugg.

Í gærdag hringdi síðan Eva vinkona mín í mig og bauð okkur í kvöldmat. Þar buðu hún og ástmaður hennar Gunnar upp á dýrindis mexíkanskan kjúklingarétt og svaðalega súkkulaðiköku í eftirrétt - sérlega gott og mjög vel heppnað kvöld.
Við Sveinbjörn vorum þó frekar ókurteis og fengum að horfa á ALIAS þar sem við megum ALLS EKKI missa af því! Þau horfðu bara með okkur og við reyndum að koma þeim inn í en það tókst nú ekkert svakalega vel þar sem þau eru búin að missa af svona 20 þáttum eða svo! Þátturinn í gær var þó ekkert svaðalegur - samt soldið spennandi eins og vanalega.

Við þökkum þeim skötuhjúum kærlega fyrir kvöldið og hlökkum til að endurgjalda þeim boðið.

Í dag bíður okkur leiðindastúss. Þurfum að fara í IKEA og skipta mottu sem við fengum í jólagjöf og fara í Tékkkristal og skipta einhverju dóti sem við fengum þaðan og svona.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég skipti jólagjöfum. Tel það vera frekar gott. Finnst oft skrýtið að fólk sem þekkir þig ekkert svakalega vel eða hefur ekki komið heim til þín treysti sér til að velja eitthvað handa þér í búið! Við fengum til að mynda bláa mottu og hérna inn er allt ljóst og beykilitað. Svo fengum við bretti, ostaskera, hníf og ostahníf sem var ekki fallegt og svo eigum við fínan ostaskera og höfum EKKERT við annan að gera! Ég er að hugsa um að velja mér einhvern fallegan kökudisk eða annað huggulegt sem við eigum lítið af! Eigum bara einn kökudisk!

Vona að dagurinn verði ykkur ánægjulegur!

Hafdís skrifaði klukkan 2:23 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli