13.12.03
Mér sýnist á öllu að Dr. Bjössi sé á leiðinni á sýningu á miðvikudaginn, það hefur enginn annar gert neitt í málinu.
Ég sem hélt að loksins yrði ég vinsæl og ætti marga vini! Það þarf greinilega meira til.
Ég er líka nokkuð svekkt yfir því að hafa bara fengið 3 tilboð í venjulegu miðana og þar af er bara 1 sem er þess vert að íhuga!
Koma svo fólk...næsta sýning er 26. desember og það er uppselt næstu daga þar á eftir svo að þið komist ekki fyrr en í janúar - og það er á NÆSTA ári!

Verð víst að rumpa svona 13 köflum af í dag og hingað til hef ég gert 1 á dag - já þetta er sluxaháttur. Ég get kennt fólki hvernig á EKKI að læra undir próf!


Hafdís skrifaði klukkan 12:26 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli