3.12.03
Líf mitt er greinilega mest spennandi þessa dagana. Það er allt svo yndislegt og fagurt. Það er svo ljúft að sitja á rassgatinu allan daginn og læra um skemmtilega hluti eins og Corpus callosum, disinhibitation, glía frumur, taugunga, myelin og mismunandi gerðir taugaboða og svo mætti lengi telja. Ef ég mætti vera að gera hvað sem ég vildi, myndi ég einmitt vera að lesa þetta. Það er líka svo gaman að fara svona hægt og rólega yfir, gleður lítil hjörtu.
Persónulega myndi ég vilja vera lengur í prófum, þetta er svo alltof stutt. Bara 12 dagar eftir - grát, grenj og gnístan tanna.
Því miður var ég búin að ákveða að taka mér smá hlé frá lestri til að fara að versla inn, það er ekkert til. Síðan var ég soldið búin að ákveða að kaupa seríur í dag en ég veit ekki hvort ég tími að eyða svona miklum tíma frá dýrindis bókunum mínum. Á örugglega eftir að deyja úr söknuði á þessum klukkutíma sem þetta tekur.
Vildi óska þess að lífið ykkar kæmist nálægt því að vera eins yndislegt og mitt.

Lífið er yndislegt og frelsið líka.

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 12:42 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli