11.12.03
Leti, leti, leti, leti líf mitt er, því að ég nenni ekki að læra og er bara þver...
Lagið er Gleði, gleði, gleði en textinn er eftir mig.
Ég er eins og textinn gefur til kynna búin að vera heldur löt seinustu tvo daga, eitthvað eftir mig eftir prófið á þriðjudag.
Hún kom reyndar og truflaði mig í dag og reyndi að koma einhverjum dónahugsunum inn í hausinn á mér en hún náði ekki í gegnum sakleysinginn ;)
Fórum svo á hörku æfingu í dag, tókum VEL á því og að henni lokinni tók Orkan við og svo Hagkaup. Ungfrúin snaraði svo í einn kjúklingarétt með barbeque en myndarlegheitunum var ekki lokið með því, heldur var snarað í eina peruköku með súkkulaði - piparmyntu, umh....
Myndarlegheit mín taka seint enda held ég því að eftir að ég tók kökuna úr ofninum var ástmaður minn slæmur í maganum og mín kippti sér ekki mikið upp við það að skokka út í búð og fjárfesta í magameðalinu góða
Er að hugsa um að fara að gæða mér á köku ;)
Fyrir þá sem hafa áhuga er svar við vangaveltu minni um stafrófið á vísindavef Háskóla Íslands. Þar eru líka mörg fleiri skemmtileg svör eins og Hvar er mamma?

Hafdís skrifaði klukkan 10:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli