29.12.03
Æ, hvað það er nú ljúft að slappa svona af...

Af mér er allt gott að frétta - hef eiginlega verið of löt til að senda ykkur línu. Í gærkvöldi komu 2 vinkonur mínar í heimsókn og við spjölluðum fram á rauða nótt - ætíð gaman og gott. Fínt að afgreiða svona mörg mál á einu bretti ; )
Sveinbjörn fór á meðan í bíó til að sjá LOTR - loksins. Hann var þó heldur seinn í bíóið og fékk því bara sæti fremst svo að ég reikna með að við förum einhvern tímann í bráð til að sjá hana aftur. Okkur var reyndar boðið í kvöld en þar sem við vorum að borða dýrindis fisk hjá mömmu nenntum við ekki. Höfðum það gott fyrir framan sjónvarpið í smá tíma og dáðumst að því hvað Jónas R. getur verið endalaust leiðinlegur sem stjórnandi Viltu vinna milljón, held að mér finnist hann vera leiðinlegri en gellan í Íslandi í dag!
Stjörnurnar stóðu sig samt ágætlega, mér fannst Gísli Marteinn og Rúnar Freyr nokkuð skemmtilegir en var ekki eins hrifin af stælunum í Hrafni og Pétri Jóhanni - skil ekki fólk sem tekur áhættu með peninga sem það ætlar að gefa öðrum.
Við skelltum okkur svo á Love Actually sem er fyrirtaks skemmtun, ég hló frekar mikið og stelpurnar sem sátu við hliðina á okkur tóku andköf þær hlógu svo mikið. Sveinbirni fannst hann vera nokkuð góður að fara með mér á svona stelpumynd og viðurkennir væntanlega seint að hann hafi skemmt sér nokkuð vel!
Sólarhringurinn minn er frekar öfugsnúinn og því er ég ekki vitund þreytt klukkan að ganga 3 - ætli ég reyni ekki að pína mig á fætur fyrir hádegi til að reyna að rétta þetta við - geymi það kannski þangað til nær dregur skóla ;)

Við erum svo að fara að flytja á allra næstu dögum og kveðjum því þessa kuldaholu sem krefst þess að maður sé í inniskóm eða teppaleggi íbúðina - hún er dúkalögð.
Þeir sem eiga kassa á lausu mega gjarnan henda þeim í okkur. Ég reddaði okkur kössum í sumar og við lánuðum þá svo og parið sem við lánuðum kassana misskildi samninginn á einhvern hátt og henti þeim öllum - fyrirtaks tölvukössum, ég er jafn svekkt yfir því og ég hljóma. Á morgun þarf ég þar af leiðandi að fara í kassaferð og betla hjá fyrirtækjum sem ég hef unnið hjá og að sama skapi þarf ég að klæða mig upp á til að líta almennilega út - fyrirhöfn!

Á morgun er ráðgert spilakvöld hérna í Eggertsgötunni og áhugasamir eru velkomnir. Lítið verður um fríar veigar en bjór verður seldur gegn vægu gjaldi!

Sjáumst hress!

Hafdís skrifaði klukkan 2:37 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli