21.12.03
Haldiði ekki að stelpan hafi skellt sér út á lífið í gær?

Kjarninn af Saumóz vinkonum mínum hittist hérna í villunni ég Eggertsgötu, þar gæddum við okkur á pizzum og afhamlandi öli og spjölluðum fram á rauða nótt. Tókum fyrir nokkur af umræðuefnunum sem við höfum aldrei rætt og þar var ég í essinum mínu eins og vanalega. MJÖG SKEMMTILEGT SEM SAGT.

Eftir miklar vangaveltur hringdum við á taxa til að fara niður í bæ en eitthvað dróst það á langinn og þurftum við að bíða uppstrílaðar niður í forstofu í það sem virtist heil eilífið! Þegar við vorum á leiðinni hringdi Sveinbjörn frá Hverfis og sagði okkur að það væri geðveik röð, nokkrum mínútum síðar hafði hann labbað beint inn - ef leigubílinn hefði ekki verið svona lengi á leiðinni hefðum við sem sagt labbað beint inn á Hverfis í staðinn fyrir að rölta á milli staða. Við enduðum þó á Sólon og var þar mikið glens og gaman, þar dönsuðum við meðal annars af okkur rassgatið svo að mitt er orðið pent á ný! Það var þvílíkt góð tónlist en gallinn á gjöf njarðar var sá að þar er bara einn lítill gluggi með örlítilli rifu. Um leið og við vorum búin að ákveða að við gætum ekki verið lengur í þessu gufubaði var hurðin opnuð en sökum stillu úti kom ekkert gott loft inn - alla vega mest lítið af því!

Þaðan héldum við á vit ævintýranna og stelpurnar enduðu á Celtic en við Sveinbjörn höfðum ekki áhuga á því að bíða í röð þar og röltum því lengra. Sveinbjörn endaði á því að hringja í vin sinn sem var að halda upp á afmælið sitt til að athuga hvort partýhöld væru enn í gangi og svo var - svo að við hoppuðum beint upp í leigubíl og í partý. Þegar við runnum í hlaðið voru gestirnir að fara niður í bæ og afmælisbarnið hrópaði ,,ekki láta bílinn fara." Síðan hurfu þeir án þess að við kæmum tauti við þá og eftir stóðum við með sárt ennið. Fórum inn í smá stund þar sem kærasta afmælisbarnsins og vinkona hennar voru! Þær voru á leiðinni niður í bæ þannig að enn og aftur tókum við leigubíl! Það voru sömu raðir og áður niður í bæ og við skötuhjú ekki þau þolinmóðustu! Við enduðum á því að labba bara niður á Nonna þar sem röð dauðans beið okkar og af sömu sökum og áður vorum við ekki lengi þaðan og fórum á Hlölla í staðinn. Að Hlölla loknum var haldið heim - ég var alveg búin í löppunum þar sem ég brá út af vananum og fór í pæjuskóm niður í bæ - nei ekki galdrakonuskóm með pinna! Þessi voru með soldið breiðari hæl svo að ég gæti labbað og með nógu breiðri tá svo að tærnar á mér kæmust fyrir. Næst ætla ég bara í sléttbotnaskónum mínum, þeir eru MIKLU betri og eins og ég hef áður haldið fram tekur enginn eftir þeim!

Ég hitti marga góða í gær og þá aðallega frjálsíþróttafólk sem var mjög kátt á Sólon.
Sigurjón neitaði að leika við okkur á Sólon þar sem við vorum að fara að dansa. Ég sem var að vona að hann lærði af myndbandinu á síðunni ÞEIRRA!

Ég vil þakka Evu, Gingu, Rakel og Möggu fyrir frábært djamm og leyfi mér hér með að stinga upp á að það líði ekki svona langt á milli þess að við förum næst!

Hafdís skrifaði klukkan 1:15 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli