|
2.12.03
Þetta þykir hér heldur skondið:
Hvaðan kemur orðið 'brussa' um klaufskan kvenmann?
Flokkur Málvísindi: íslensk 1.12.2003
Svar:
Uppruni orðsins brussa í merkingunni 'sver og skessuleg kona' er ekki alveg öruggur. Ekkert sambærilegt orð er þekkt í Norðurlandamálum eða í öðrum nágrannamálum.
Ásgeir Blöndal Magnússon tengir það í Íslenskri orðsifjabók lýsingarorðinu bryssinn 'beysinn, burðugur' og norsku sögninni brysja 'láta mikið, hreykja sér'. Brussa væri þá skylt sögninni bryssa í merkingunni 'æða áfram'.
Tekið af vísindavef Háskóla Íslands.
Hafdís skrifaði klukkan 2:02 e.h. |
|