|
|||||||||||||||||||
|
2.12.03
BOX
Ég hef verið að velta þessu box-máli fyrir mér síðan strákurinn lenti í slysinu í Vestmannaeyjum. Það eru mjög skiptar skoðanir um þetta mál og sitt sýnist hverjum. Ég fyrir mitt leyti skil ekki afhverju þessi íþrótt ætti að vera bönnuð en ekki aðrar. Veit ekki betur en Júdó og öll þessi afbrigði af því séu líka stórhættuleg og hafi valdið slysum. Lenti ekki einhver strákur í alvarlegu slysi í sumar þegar sparkað var í hausinn á honum? Ég er enginn sérstakur box áhugamaður en mér finnst allt í lagi að horfa á þetta og ímynda mér hvað ég væri dauð eftir 20 sekúndur af þessu handapati. Það er bara svo skrýtið að banna eina íþrótt en ekki aðra. Það eru margar hættulegar íþróttir til í þessum heimi í dag. Seinast þegar ég gáði var box ekki skráð undir extreme sports. Mér finnst bara að fólk megi stunda sínar íþróttir, að stjórnvöld eigi ekki að geta ráðið hvaða íþróttir eru stundaðar á landinu. Það er svo margt hættulegt í þessum heimi. Það er alls staðar hægt að lenda í slysi! Höldum boxi áfram löglegu á Íslandi! Hafdís skrifaði klukkan 11:41 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||