16.12.03
:::.....BÚIN Í PRÓFUM.....:::

Já, það er gleðidagur mikill í dag! Ég kláraði seinna prófið mitt í gær og er því komin í langþráð jólafrí. Reyndar verð ég með hjartað í buxunum þangað til að ég fæ út úr sálfræðiprófinu mínu. Ef ég fékk ekki 5 í því þarf ég að taka endurtekt þann 7. janúar og eins og gefur að skilja er ég ekki mjög hrifin af því!
Prófið í gær gekk bara ágætlega að ég held. Náði þó ekki alveg að klára það sökum tímaskorts. Var alveg með tímann á hreinu í byrjun en undir lokin klikkaði mín smá. Byrjaði á 16% spurningu þegar 10 mín voru eftir og það gefur ekki góða raun get ég sagt ykkur. Ég náði þó að klára 4% af þessum 16 alveg ágætlega og náði að skrifa smá stikkorð um önnur 4% svo að ég fæ vonandi eitthvað fyrir það. Frétti svo síðar að flestir hefði sleppt seinni 8% spurningunni þar sem hún var víst bara BULL.
Í gærkvöldi var ég svo almennileg kærasta og hjálpaði Sveinbirni að klára einhverjar skilgreiningar. Var að búa til einhverjar formúlur inn í WORD og var orðin nokkuð lúnkinn í lokin þrátt fyrir örlítil byrjendamistök.
ALIAS kom svo sterkur inn í gærkvöldi og ég er ekki frá því að þessir þættir verði alltaf meira spennandi. Reyndar vissi ég alveg að Vaughn væri ekki vondur, það gat barasta ekki verið, hann er svo sætur og sætir strákar geta ekki verið vondir! - leyfið mér alla vega að halda það smá stund lengur!

Í dag þurfti ég samt að vakna við vekjaraklukku þar sem ég átti að mæta upp í Europay kl.11 til að sækja fallegu miðana mína á LOTR. Mig grunaði að það yrði einhver myndataka og læti þar sem ég átt að mæta kl.11 á þriðjudegi en ekki bara hvenær sem er. Ég reyndi því að fara í aðeins skárri föt og að líta sómasamlega út - veit reyndar ekki hvort það tókst en...vonum bara það besta. Svo var tveimur myndum smellt af mér og einhverri konu sem afhenti mér miðana góðu og forláta LOTR húfu! Hún er reyndar ekki með stærðarstillingu og er því ALLTOF stór á mig, en hún er samt fríð.

Ég reikna með að taka til í dag og gera fínt heima hjá mér. Síðan var ég að hugsa um að baka handa Sveinbirni og henni Möggu minni sem eru ennþá að læra. Þau eru í nágreninu svo að ég get bara skutlast með köku handa þeim. Aðrir áhugasamir um skúffuköku a la Hafdís mega hafa samband!

Oh, hvað það er gott að þurfa ekki að læra!

Hafdís skrifaði klukkan 12:12 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli