2.12.03
Afhverju er svona misjafnlega erfitt að læra eftir dögum. Stundum get ég setið við lengi, lengi en stundum gengur ekki neitt. Átti frekar erfitt með að læra í dag og var SVO lengi að gera allt sem ég gerði. Er líka enn í þeim pakka að sofna seint og vakna seint. Ætla að reyna að pína mig á lappir snemma í fyrramálið! Bara harkan sex sem gildir.

Úff ég þarf að massa dáldið margar blaðsíður á morgun. Fyrir prófið mitt sem er 9. desember þarf ég að lesa 845 bls. hvorki meira né minna. So far er ég ekki búin með margar! Ég var nú samt í prófi úr 1/3 námsefninsins á laugardaginn og hef því ekki eins mikið efni að fara yfir - thank god.
Ég er bara svo skrýtin með það að þegar ég er nýbúin í prófi gengur mér illa að byrja að læra aftur. Eins og heilinn mótmæli - hann hefur greinilega ekki mikið vinnsluminni þessa elska.

Ég er að hugsa um að byrja á nýjum lið á síðunni. Hann mun bera heitið setning dagsins og þið eigið að reyna að átta ykkur á því hver sagði þessi orð. Spurt var á MSN hvað ætlarðu að borða um jólin.
Svar: KFC eða eitthvað
Þetta er reyndar tekið soldið úr samhengi en...
Sú/sá hin/n sami má ekki gefa upp rétta svarið!

Giskið þið nú!

Hafdís skrifaði klukkan 10:19 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli