23.11.03
Í tilefni þess að ég fer svo sjaldan í bíó hef ég farið tvisvar í þessari. Við fórum með Rakel og Himma á Kill Bill á miðvikudaginn og ég get ekki annað sagt en að þessi mynd sé snilldin ein. Þvílíkt flott atriði - heldur blóðug fyrir minn smekk en ég lifði, geðveik tónlist - er einmitt með bang gang hit the floor á heilanum ennþá og svo er myndatakan ein sú besta sem ég hef á ævinni séð. Ég er reyndar bara nýfarin að pæla í henni en þarna tók maður svo sannarlega eftir því. Mjög mörg atriði sem aldrei gleymast og þvílíkt flott bardagaatriði. Samt var hún ekki það ógeðsleg að mér liði eitthvað illa þar sem þetta er ekki haft það raunverulegt. Skildi eftir myndina hvert þessir 1000 lítrar af blóði fóru. Get ekki beðið eftir framhaldinu - og ég sem ætlaði ekki að fást til að fara.
Núna rétt í þessu vorum við svo að koma heim af Scary Movie 3 - hún var ágætis afþreying en ekkert meira en það. Pamela Anderson fer reyndar á kostum og ég segi fyrir mitt leyti að hún hafi aldrei sýnt betri leik enda fædd í hlutverkið! Þvílík B R J Ó S T...
Flest góðu atriðin eru í trailernum eins og vanalega en ég gat samt alveg hlegið að nokkrum þeim til viðbótar. Samt voðalega vitlaust allt saman!
Veit ekki hvernig mér gekk í prófinu í dag, það var heldur strembið.
Fékk samt mjög góða einkunn fyrir ritgerðina mína sem ég skrifaði um áhrif erfða og umhverfis á greind, mjög ánægð með það þar sem meðaleinkunin er víst alltaf í kringum 3-4.
Er að hugsa um að taka upp aðferð Robba og skrifa allt sem mér dettur skemmtilegt í hug inn í símann minn, datt eitthvað voða sniðugt í hug í fyrradag en er náttla búin að steingleyma því.

Steingleymdi að hrósa happi yfir sigri Jen í Bachelor, ég hélt sko með henni en ekki þessar undirförlu druslu. Leiðinlegt þegar fallegt fólk verður ljótt þegar maður kynnist persónuleikanum, jafn leiðinlegt og þegar ófrítt fólk verður fallegt vegna yndislegs persónuleika. Mér fannst Jen fríkka með hverjum þættinum, virtist vera svo indæl.
Ég vona að þau verðir hamingjusöm.

Hafdís skrifaði klukkan 12:47 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli