7.11.03
Letidagur dauðans í dag.

Sváfum endalaust í morgun, veit ekki alveg hvað er með þessa svefnsýki, er alla vega að verða frekar ÞREYTT á því að vera þreytt.
Fór í prófsýningu í dag og komst að því afhverju ég klúðraði ritgerðinni. Í rauninni klúðraði ég henni ekkert, gleymdi bara að segja að ákveðið dæmi sem ég tók væri dæmi um misræmi í kjölfar hlýðni og fékk því ekkert fyrir það, hefði átt að fá svona helmingi meira fyrir ritgerðina en þetta er ekki menntaskóli, maður verður að útskýra allt sem maður gerir og segir, fær ekki stig fyrir það sem þú skrifar því að kennarinn veit hvað þú meinar.
Ég verð bara að taka því eins og manneskja. Reiknaði út hvað ég hefði fengið fyrir krossana ef ekki væri dregið niður fyrir rangt svar - hefði hækkað um tæplega 1 heilann. Gaman að vita hvað maður getur, var oftast að hugsa rétt í sambandi við krossana, klikkaði á 1 og 2 eru réttir eða 1, 2 og 3 eru réttir yfirleitt. Gott að vita hvað maður getur!
Spurði sem sagt konuna hvað ég hefði gert vitlaust í ritgerðinni og núna veit ég það og því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ég brilleri á næsta prófi ;)

Við Sveinbjörn fórum á íþróttavöruútsölu í gær og töpuðum okkur, keyptum fyrir ALLTOF marga peninga. Ég fékk til að mynda 9000 króna afslátt af mínum vörum - frekar nett!
Ekki á hverjum degi sem ég kaupi mér íþróttaföt, sérstaklega ekki fín íþróttaföt. Held að ég verði alveg í vandræðum með að finna í hverju ég eigi að fara í dag...ætli ég máti ekki bara dressin og velji það besta!

Við Sveinbjörn fórum á Vöruhótel Eimskipa í dag, ekkert smá stórt hús, og heilmikið vesen að komast að því og að fá það sem maður ætlaði að fá en samt einfalt þegar maður hefur gert það einu sinni.

Hef ekki alveg ákveðið hvað ég ætla að gera í kvöld, IDOL heillar mjög heima hjá MÖMMU MINNI en Sveinbjörn er að stjórna einhverju Bingói í kvöld og mér finnst BINGÓ skemmtilegt og því gæti farið svo að ég kíkji í BINGÓ og horfi bara á upptöku af IDOL seinna um kvöldið. Vill einhver koma með í BINGÓ? Endilega hafa samband!

Hafdís skrifaði klukkan 4:39 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli