|
|||||||||||||||||||
|
11.11.03
Ég vildi að erfðir og umhverfið hefðu haft þau áhrif að ég hefði meiri greind til að skrifa ritgerð um hvaða áhrif erfðir og umhverfi hafa á greind. Er að mestu leyti búin að ákveða hvað ég skrifa en það er bara déskoti erfitt að tengja það saman. Svo þarf þetta allt að vera svo tipp topp, kommur á réttum stað, heimildaskráin gallalaus og svona skemmtilegheit. Ég get þó huggað mig við að ég er búin með forsíðuna og er að gera heimildaskránna jafn óðum og bæti tilvísunum inn um leið og ég skrifa svo að ég þarf ekki að gera neitt nema lesa yfir þegar þessu líkur. Ég er örugglega komin með eina blaðsíðu af þremur og fer að komast á flug ; ) VONANDI.
Tók fyrstu æfinguna mína í gaddaskóm í gær og er heldur stíf fyrir vikið í dag, fór líka í smá grindahlaup og þess vegna er ég ennþá stífari en ætla mætti. Komst að því í gær að það er mjög sniðugt að æfa einn, hljóp 2x300 með ,,hinum" og Kristín Birna fór fyrir okkur á 80% hraða en það misfórst eitthvað hjá henni þannig að flestir voru vel þreyttir eftir fyrri sprettinn og lærin mín kvörtuðu undan sýru - enda engin smá stykki þar á ferðinni. Ég tók síðan seinni bara eftir mínu nefi og hann gekk mun betur. Í framhaldi af umræðum hér að neðan mæli ég eindregið með því að Erna og Bergur stofni matarklúbb. Hér með er það komð til skila, þeir sem hafa áhuga á matargerð fá áreiðanlega inngöngu. Mælst er til þess að þeir hinir sömu aðhyllist hollan mat og setji nammi ekki inn fyrir sínar varir! Hafdís skrifaði klukkan 1:17 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||