|
|||||||||||||||||||
|
2.11.03
Ég veit ekki hvað amar að mér þessa dagana. Ég er bókstaflega alltaf þreytt - nema seint á kvöldin þegar ég á að fara að sofa. Þá er ég frekar spræk bara! Held að ég sé komin með Sigurjóns-syndrome. Líst ekkert á þessa þróun. Náði að lesa svona 5 blaðsíður í dag áður en augun á mér fóru að mótmæla, svo fórum við aðeins í heimsókn til tengdamömmu og þar var ég hálf sofandi yfir Leicester - Blackburn, náði varla að halda augunum opnum. Samt get ég ekki lagt mig á daginn, skil barasta ekkert í þessu. Reyndar hef ég gleymt að taka lýsið mitt tvo daga í röð sem hlýtur að skipta einhverju máli þó reikna ég ekki með að það skipti sköpum þar sem ég var líka þreytt í síðustu viku og þá tók ég samviskusamlega inn lýsið mitt.
Reyndar hef ég verið að íhuga framtíð mína síðustu daga og fiskar (stjörnumerkið mitt) eru víst ekki þeir bestu í að taka ákvarðanir. Þetta lýsir sér sérstaklega vel þegar ég er að stinga upp á kvöldmat handa okkur skötuhjúunum, kem alltaf með svona 5 hugmyndir en get ómögulega valið eina - greyið Sveinbjörn. Leyfi honum svo að ákveða en vel svo eitthvað annað... Við höfðum það bara gott í gærkvöldi, vorum heima í Skipasundi og fengum heimatilbúna pizzu, köku og brauðrétt - frekar ljúft. Mamma er svo myndarleg! Í kvöld er stefnan tekin á spólu og notalegheit. Confidence varð fyrir valinu í sérlega litlu úrvali Bónusvideós! Sveinbjörn er orðinn eitthvað æstur, kominn með súkkulaðirúsínurnar og er að horfa á Beoncie Knowles fáklædda...held ég setji spóluna bara í.... Hafdís skrifaði klukkan 8:02 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||