|
|||||||||||||||||||
|
30.11.03
Ég var sem sagt í prófi í gær og hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk. Það er nefnilega þannig með krossapróf. Í fyrstu yfirferð set ég hring utan um svarið ef ég er viss - eða svona allt að því, annars set ég punkt fyrir framan það sem ég held að sé rétt ef mig grunar það annars geri ég ekki neitt og skoða spurninguna aftur í næstu umferð. Þegar ég hef lokið þessari yfirferð á spurningarnar 60 skrifa í ritgerðina - en ég skoða ritgerðarefnin ekki fyrr en ég er búin að fara yfir krossana í fyrstu umferð - annars dey ég bara úr stressi og aumka mig yfir lítilli vitneskju minni.
Ég fékk líka sjokk í gær þegar ég las ritgerðarspurningarnar tvær - eigum að velja eina. Síðan þegar ég las þær í 10 skipti fann ég út að ég gæti e.t.v skrifað smá um þá síðari - og endaði á því. Eins og gerist svo oft mundi ég miklu meira þegar ég byrjaði að gera beinagrind á krassblaðið mitt og ég held að þetta hafi svona bjargast í lokin. Reikna nú samt ekki með því að ég fái marga punkta fyrir hana en vonandi eitthvað þó - ætli ég lækki nú samt ekki eins og vanalega samt. Þegar ég var búin að fara tvær umferðir í viðbót yfir krossana, sagði ég þessi lokið og fór heim nákvæmlega 1 mínútu áður en próftíminn rann út. Að prófi loknu beið mín laufabrauðsgerð hjá systur mömmu þar sem hele familien var mætt á svæðið. Eftir að hafa skorið út nokkrar var ég alveg komin með nóg en lét mig þó hafa það! Bunkinn ætlaði þó engan endi að taka og undir lokin voru allir komnir með aðferðina hans pabba. Hún er sem sagt þannig að renna bara járninu í gegnum kökurnar í miðjunni og segja það gott. Laufabrauðin verða sem sagt sehr hugguleg hjá okkur þetta árið. Fyndið hvað maður er alltaf hugmyndaríkur í byrjun en verður síðan uppiskropa undir lokin. Ég þarf alltaf að vera soldið öðruvísi og mamma var sérlega ánægð með mig. Ég föndraði kerti á grenigrein, jólahús með greni, blóm, H og fjöldann allan af sérkennilegum mynstrum - bara stuð sem sagt. Svo á eftir var sviðaveisla og hangikjöt fyrir þá sem ekki vildu svið - hangikjötið var svo feitt svo að ég borðaði bara lítið og bætti mér tapið upp með eplakökunni sem var í eftirrétt. Krakkarnir voru vel fjörug eins og vanalega og eyrun á öllum voru heldur aum að heimsókn lokinni. Rakel og Himmi komu svo í heimsókn til okkar eftir leikhúsferð þeirra skötuhjúa og nutu góðs af myndarlegheitum mömmu þar sem afgangurinn af eplakökunni var þeirra! Þau voru nú samt frekar léleg og því er ennþá of mikill afgangur. Held að við Sveinbjörn getum haft eplaköku í öll mál þangað til á þriðjudaginn! Fleira er ekki í þættinum í kvöld, sjáumst að viku liðinni! Hafdís skrifaði klukkan 2:01 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||