28.11.03
Ég held ég sé ein af þeim mest seinheppnu í geimi.
- Ég svaf lítið í nótt þar sem ég er svo stífluð í nefinu og það er ógeðslega vont að anda í gegnum munninn. Þrátt fyrir stórt vatnsglas var ég samt skrælnuð í kjaftinum þegar ég vaknaði.
- Ég snýti mér á 5 mínútna fresti og það tekur svona 5 mínútur þar sem ég er með endalausar birgðir.
- Ég hnerra líka þess á milli og þegar ég hnerra er sko tekið á því, ekkert bælt.
- Mér tókst hið ómögulega, fékk tak í bakið með því að sitja kyrr - held að hnerrarnir eigi þó hlut að máli.

Núna er ég sem sagt hálf bækluð fyrir framan tölvuna að sjúga upp í nefið og drekka til að halda munninum á mér blautum.

Þetta er hið ljúfa líf!

Hafdís skrifaði klukkan 12:11 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli