|
|||||||||||||||||||
|
21.11.03
Ég hef greinilega fleiri kæki en ég ályktaði upphaflega. MUN FLEIRI.
Held að listinn hans Sveinbjörns hafi þó meira verið það-sem-fer-í-taugarnar-á-mér-sem-Hafdís-gerir. Ég á það nefnilega til að syngja lög í bílnum sem eru alls ekki í útvarpinu eða er aðeins á undan laginu...svo á ég það líka til að flauta þegar spennandi atriði eru í bíómyndum... Hann hefur oft hlegið af því að einu sinni kom hann í Sal 1 í Háskólabíó til að sækja mig, þar inni vorum svona 400 viðskiptafræðinemar og það tók hann ekki nema 2 sekúndur að finna mig - ég var nefnilega að snúa upp á hárið... Ætli ég verði ekki bara að fá mér hárkollu og gervineglur... Ég er að reyna að hætta að ,,blaka" vængjunum þegar ég undirbý mig undir stökk - geri það með því að stökkva ekkert. Held að ég sé bara svona OFUR kvenleg! Það að klóra er ekki kækur heldur sjúkdómur sem heitir EXEM. Reyndar barnaexem en ég er ennþá barn... Kláraði að reikna öll tölfræðidæmin mín í gær - dugleg og á þá bara eftir að fara yfir aðferðafræðina! Er búin að vera hálfslöpp síðan í fyrradag, með kvef og hausverk og leiðindi. Ekki ánægð með þetta. Held ég sé líka búin að smita Sveinbjörn, ég hélt vöku fyrir honum í alla nótt með látum og nefsogum - ekkert smá erfið kærasta. Næst fer ég að snúa upp á hárið í svefni og naga neglurnar - er ekki ennþá byrjuð á því! Jæja, þetta gengur ekki lengur... Hafdís skrifaði klukkan 2:06 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||