27.11.03
Ég er orðin örvæntingarfull. Þegar ég var að skokka Laugarásveginn í dag fann ég ÞVÍLÍKA rjúpnalykt og fékk vatn í munninn og læti. Var meira að segja næstum búin að renna á lyktina og stela steikinni...munað MJÖG litlu. Sveinbjörn náði að hemja mig með því að segja að þetta væri eins og hrossalykt - lamdi hann að vísu fyrir það. Guð hvað ég öfunda fólkið.
Ykkur til mikillar ánægju hef ég þó einsett mér að hætta að væla yfir þessu og vera bara sterk - ég get þetta.

Dagurinn hefur annars bara farið í lærdóm og skemmtilegheit. Þvoði þó ekki neitt í dag enda óhreinatauskarfan tóm eftir duglegheit gærdagsins.

Í dag lærði ég meðal annars að börnin mín ættum samkvæmt rannsóknum að vera bæði hjálpsamari og meira leiðbeinandi en börnin ykkar. Það er mjög líklegt að ykkar börn verði annað hvort beitt of miklu harðræði ( þeir sem hafa lágar tekjur aðallega) og verði þar af leiðandi líklegri til að láta undan freistingum þegar þær bjóðast - reykja sem sagt og drekka mikið. Ef þið leyfið börnunum ykkar að ráða sér sjálf og gefið þeim allt er líklegt að þau verði taugaóstyrk og vanti aðhald. (Bróðir þinn Robbi).
Fólk sem menntar sig í þessum skemmtilegu fræðum verða hins vegar leiðandi foreldrar, útskýra reglur fyrir börnunum sínum og hlusta á útskýringar þeirra.
Ég er reyndar ekki alveg sammála þessu en....
Frændi minn er reyndar sálfræðingur og elur börnin sín einmitt upp með þessu leiðandi kerfi - verður gaman að sjá hvað verður úr þeim.

Jafnframt komst ég að því að ég er ekki góð að búa til lærdómsáætlanir, þær bregðast alltaf. Veit ekki hvað ég geri vitlaust! Átti sem sagt að komast yfir að glósa 4 kafla í dag en so far er ég bara búin með tvo og klukkan að verða 10...
Það sem drepur mann ekki herðir mann víst...
Ég vildi óska að maður ætti bara að skila verkefnum í skóla og allt sem heitir próf yrði lagt niður.
Annars gekk mér bara frekar vel í prófinu sem ég fór í síðustu helgi - kom mér á óvart.
Próf eru samt afkvæmi djöfulsins.

Hafið það gott...

Hafdís skrifaði klukkan 9:43 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli