|
|||||||||||||||||||
|
24.11.03
Ég er búin að finna jákvætt atriði við rjúpnabannið. Ég hef áður sagt að það verði engin jól sökum rjúpnaskorts og hef mikið verið að velta fyrir mér lausn á þessu erfiða vandamáli. Mamma er búin að koma með uppástungur um að elda hreindýrakjöt en það þykir víst keimlíkt rjúpukjötinu. Sjálfri datt mér í hug að hafa bara svartfugl þar sem mér finnst hann góður og honum svipar til rjúpu á bragðið. Fjölskyldan mín er vön því að borða rjúpur tvisvar á ári, á aðfangadag og svo á gamlársdag. Ég fór að hugsa um þetta í gær og komst í framhaldi af því að þeirri ályktun að víst að það verða ekki jól þá verða heldur ekki áramót og ég eldist þar af leiðandi ekkert fyrr en rjúpnabanninu verður aflétt og verð því 22 ára næstu 3 árin í viðbót - : ) Get ekki líst því hvað ég var glöð þegar ég komst að þessu, finnst nefnilega alveg svakalegt að hugsa til þess hvað árin líða hratt. Næst þegar ég borða rjúpu verð ég því ekki 25 ára heldur 22 og þá er þetta nú barasta alls ekkert svo langt.
Spurning dagsins er svohljóðandi: Hvernig kom ég mér í skólann þegar ég var í MS? Á þessum 4 árum fór ég aðallega í skólann á tveimur faraskjótum - hverjum? Aukaspurning gefur aukastig - undantekning frá þessu voru 3 vikur, hvað gerðist þá? Í framhaldi af svarinu við aukaspurningunni má koma með getgátur um fyrir hvað ég var þekkt í MS - já ég var einu sinni þekkt ; ) Held að þetta sé bara erfiðasta þrautin til þessa! Hafdís skrifaði klukkan 1:43 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||