4.11.03
Frekar spookie hvernig þeir vita hvað tölu maður er að hugsa um...kíkið á þetta!
Fyrst hélt ég að þetta væri bull þegar hann kom ekki með réttu töluna en þá kom í ljós að ljóskan hún ég gerði smá mistök.

Annars er bara verið að skipta um hurðir í húsinu mínu og þessir duglegu verkamenn ráða við EINA hurð á dag. Verða sem sagt út nóvember og aftur í janúar að klára að skipta. Þeir taka líka frekar furðulega röð á þetta - virðist vera nokkuð random. Hélt að þeir ættu að geta skipt um tvær hurðir hlið við hlið en NEI.
Ég flúði upp í skóla þar sem hávaðinn var heldur mikill fyrir mig - svo er ég líka einstaklega dugleg að taka til í stað þess að læra.

Jæja, best að sanna að ég geti lært á daginn - farin upp á bókasafn.

Hafdís skrifaði klukkan 2:17 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli