|
1.11.03
Fór óvænt út á lífið í gær þegar Rakel vinkona mín hringdi í mig frá Hverfis í þvílíku stuði. Var þó ekki langt fram á kvöld þar sem ég er enn þreytt eftir lítinn svefn undanfarnar vikur. Skemmti mér þó mjög vel enda voru verkfræðinemar að koma úr haustferð og voru frekar hress og kát! Ég dansaði heilmikið og bætti mér þannig upp æfingaleysi dagsins. Í dag hygg ég hins vegar á mikar vegalengdir og ætla að draga Rakel með mér þar sem hún dró mig út í gær. Hún hefur gott af því að hlaupa af sér slenið.
Annars er ég bara þreytt og ætla að hafa það gott í fram að æfingu.
Hafdís skrifaði klukkan 2:31 e.h. |
|