|
|||||||||||||||||||
|
3.11.03
Það er megavika á Dominos þessa vikuna og því finn ég mig knúna til að segja frá því að um daginn pantaði Sveinbjörn pizzu og ekkert með það nema að hann hafði heyrt að það væri megavika. Þegar hann hefur lokið við pöntunina - eina dominos extra- segir stúlkan að þetta kosti tvö þúsund og eitthvað krónur. ,,Bíddu er ekki megavika" segir þessi elska og þá svara hún ,, bara fyrir þá sem vita af því." Á undan okkur í röðinni var svo kona sem borgaði fúlgu fjár fyrir pizzuna sína og horfði svo á okkur borga 1000 kall fyrir okkar - ég hefði verið lengi að ná afgreiðslustúlkunni úr taugunum á mér.
Finnst þetta frekar skítt hjá þeim samt sem áður að bjóða bara þeim sem vita af megaviku upp á megaviku. Okkur fannst þetta alla vega soldið skrýtið. Ég hélt e.t.v að stelpan hefði verið að rugla eitthvað í Sveinbirni þar sem hún hefði gert mistök en þegar ég sá fólkið á undan okkur og á eftir okkur sá ég að hún var ekkert að bulla. Ég er ekki alveg viss hvað markaðsfræðin segir um þessa þjónustu en hjá mér fær hún ekki marga punkta - þó fleiri en hún hefði fengið ef ég hefði ekki fengið pizzuna á 1000 kall! Hafdís skrifaði klukkan 11:24 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||