19.11.03
Ekkert smá erfitt að gera verkefni sem maður skilur mest lítið í, ég er að gera rannsóknarskýrslu og hef ekki HUGMYND um hvað ég er að gera - gott etta.
Ég er orðin fræg, fyrir ykkur sem vissuð ekki af þessari skyndilegu frægð minni bendi ég á íþróttasíðu morgunblaðsins. Frændi minn sem les íþróttablaðið alltaf bara til að leita að mér, hann þykist vita að ég birtist einhvern tímann þar, varð áreiðanlega mjög glaður maður í gær.
Núna get ég loksins farið að klippa út í úrklippubókina mína ; ) VEI!

Spurning dagsins:
Ég er með nokkra kæki, nefndu tvo þá mest áberandi!
Eins og áður er mikill heiður og virðing í boði fyrir þann sem svarar rétt!

Hafdís skrifaði klukkan 2:10 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli