13.11.03
Einn kennarinn minn eyddi í dag korteri af tímanum í að útskýra fyrir okkur út frá einu grafi að könnun á meðal nemenda sýndi að meirihlutanum fyndist yfirferðin hæfilega hröð og að fæstum fyndist hún of hæg þrátt fyrir að hún hefði fengið póst þess efnis að yfirferðin væri alltof hæg. Mér fannst soldið skondið hjá henni að útskýra þetta fyrir okkur svona lengi, þar sem flestir sem eru með yfir 70 í greind voru búnir að skilja þetta á 2 mínútum í mesta lagi og þá tel ég með 1 og hálfu mínútuna sem fólk notaði til að spjalla í upphafi tímans. Gaman að þessu!

Hafdís skrifaði klukkan 9:27 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli