|
|||||||||||||||||||
|
10.11.03
Þarf að hrista eitt stykki ritgerð fram úr erminni í dag. Hef ákveðið að eyða ekki lengri tíma til að skrifa hana en nemur deginum, þarf nú samt auðvitað að fara á æfingu og svo eru nokkrir skemmtilegir þættir í kvöld, svo að ég skrifa hana bara á 5 tímum - það ætti nú ekki að drepa mig.
Gerði mjög svo heiðarlega tilraun til að lesa heimildirnar um helgina en önnur greinin sem ég átti að lesa (30 bls) var svo DREP leiðinleg að ég gat ekki lesið nema bút og bút í einu og endaði á því að lesa valda búta og sleppa meirihlutanum. Komst svo að því í skólanum í morgun að fleiri en ég notuðu sömu aðferð. Guðný misreiknaði sig aðeins á dögum, hélt að við ættum að skila eftir viku og því stendur hún væntanlega í ströngu í dag að lesa heimildir og skrifa. Auk þess gerði ég heimildanotkunarverkefnið fyrir okkar beggja hönd og því vefst það áreiðanlega soldið fyrir henni - en hún er svo klár að þetta bjargast. Helgin var bara hin rólegasta eins og sjá má af færslunum hér að neðan. Í gær var ég bara heima hjá mömmu og pabba að horfa á fótbolta og hafa það gott á meðan ég reyndi að lesa leiðindin. Í gærkvöldi var svo saumaklúbbur hjá Guðrúnu Ingu og tókst hann sérlega vel. Mér tókst alla vega að borða á mig gat og sulla helmingnum af bláberjaostakökunni í kjöltuna á mér - mjög mikið ég. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla kátínu viðstaddra og því miður náðust heimildamyndir af þessu. Ég fór því frekar seint að sofa í gær og vaknaði mun fyrr en seinustu daga - seinustu daga hefur talan 11 verið það fyrsta sem ég sé ; ) Eins og gerist og gengur í saumóz var mikið slúðrað og þar ber hæst að nefna að Birgitta Haukdal er víst forfallin kókaín-neytandi og er víst í meðferð - ég trúi því reyndar seint en... og svo á hann Jónsi félagi hennar að vera orðinn hommi og félagi hans er víst Svavar Örn klippikarl - ég trú því reyndar heldur ekki. Ótrúlegt hvað slúður er sterkt á Íslandi. Stórar fréttir í mínu lífi eru svo þær að ég er að hugsa um að falla frá öllum mínum fordæmingum og éta ofan í mig margar, margar greinar sem ég hef skrifað og skella mér á Grease með mömmu. Eftir Djúpu-laugar þáttinn sem Jónsi og Birgitta stjórnuðu held ég að ég þurfi að fara að sjá þetta með eigin augum og gagnrýna svo... Ég er reyndar mjög þrjósk og því ótrúlegt að ég falli svona frá skoðunum mínum. Samkvæmt sálfræðinni hefur hér skapast misræmi og til þess að leiðrétta þetta misræmi þarf ég að breyta hegðun minni eða skoðunum. Þar af leiðandi þarf ég að breyta skoðunum mínum til að geta farið á Koppafeiti. Hér með er ég búin að því og það skjalfest. Ritgerðin bíður mín hins vegar. Held að það sé gáfulegt að ég fái mér smá í svanginn og horfi á Dhörmu og Greg áður en ég sest við skriftir. Áhrif erfða og umhverfis á greind - here I come... Hafdís skrifaði klukkan 12:27 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||