|
|||||||||||||||||||
|
31.10.03
Hef lengi ætlað að skrifa lista 100 mismerkilegra atriða um sjálfa mig og loksins lét ég verða að því, enjoy.
1. Ég fæddist á Landspítalanum 1.mars 1981 2. ég var 15 merkur og 52 cm 3. Ég bjó í Reykjavík þangað til ég varð 3 mánaða 4. þá flutti ég til Vopnafjarðar þar sem ég bjó til 16 ára aldurs 5. ég hef búið í Reykjavík síðan 6. Foreldrar mínir heita Sigríður Karlsdóttir og Pétur Hafsteinn Ísleifsson 7. ég á eina yndislega systur sem heitir Sæunn 8. ég á líka 2 ömmur en engan afa, 9. ég fékk bara að kynnast öðrum þeirra 10. hann kunni að prjóna ullarsokka og var yndislegur í alla staði 11. ég hefði viljað kynnast pabba hennar mömmu, 12. okkur hefði komið vel saman. 13. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og síðan ég man eftir mér hef ég verið spriklandi. 14. Ég byrjaði að keppa í frjálsum íþróttum þegar ég var 10 ára 15. þá fékk ég 3 fyrstu medalíurnar mínar 16. ég grenjaði í fyrsta skipti sem ég tapaði í spretthlaupi 17. ég er ennþá mjög tapsár og finnst fátt leiðinlegra en að tapa. 18. ég hef líka æft fótbolta, 19. leikið mér í körfubolta, 20. blaki 21. og handbolta. 22. Mér finnst ekki eins gaman að æfa núna og mér fannst hér áður fyrr. 23. Ég er mjög óákveðin 24. sem dæmi um það má nefna að ég hef prófað 3 brautir í Háskóla Íslands 25. Sjúkraþjálfunarskor 26. Viðskiptafræðiskor 27. og núna að síðustu sálfræðiskor en mér líkar mjög vel í sálinni. 28. og reikna með að halda áfram á þeirri braut. 29. Ég á marga góða vini en besti vinur minn er jafnframt kærastinn minn 30. hann heitir Sveinbjörn Jónsson 31. ég elska hann meira en lífið sjálft! 32. Við erum búin að vera saman í rúmlega 2 ár 33. Við búum saman á Stúdentagörðum í lítilli, sætri íbúð. 34. Ég hef átt tvo aðra kærasta 35. Ég sakna Vopnafjarðar mikið 36. Þar býr yndislegt fólk 37. Þegar ég eignast börn ætla ég að búa út á landi 38. mér finnst ekki ákjósanlegt fyrir lítil börn að alast upp í þessar ys og þys 39. ég vil ekki geyma barnið mitt á leikskóla og í barnapössun á líkamsræktarstöðvum. 40. ég ætla ekki að missa af neinu. 41. Ég er mikil tilfinningavera og tek hluti mjög inn á mig. 42. Ég er langrækin 43. Mér finnst vinur vera sá sem hringir reglulega í þig 44. einhver sem man eftir afmælisdeginum þínum 45. og sá sem er til staðar fyrir þig þegar erfiðleikar steðja að 46. Ég á ekki marga svoleiðis vini. Á fleiri kunningja. 47. Besta vinkona mín heitir Ellen, 48. hún skilur mig svo vel. 49. Ég held að ég sé mjög góður vinur vina minna og vill allt fyrir þá gera. 50. vinir eru mjög dýrmætir. 51. Mér finnst líka gaman að gleðja aðra, 52. Fjölskyldan mín er yndisleg, held ég sú besta í heimi 53. við mamma erum mjög góðar vinkonur og ég þarf helst að heyra í henni á hverjum degi 54. Við pabbi erum mjög lík og eigum því mjög vel saman 55. við erum bæði mjög hávær og miklar brussur 56. Systir mín er 15 ára og framan af höfum við keppst um athygli foreldra okkar 57. núna erum við orðnar betri vinkonur og ég ætla aldrei að missa hana. 58. Ég bjó í Skipasundi 57 59. Ég varð mjög reið þegar ég frétti að við værum að flytja til Rvíkur. 60. ég var lengi reið við pabba fyrir að fá vinnu fyrir sunnan. 61. Sumarið sem við fluttum grét ég meira en ég hef nokkru sinni gert 62. ég var líka hálf þunglynd 63. ég átti enga vini í Reykjavík og var ekki dugleg að koma mér á framfæri. 64. ég hverjum degi hjólaði ég frá Skipasundi 57 og upp í Árbæ 65. þaðan fékk ég far á æfingu með þjálfaranum mínum. 66. Ég byrjaði svo í MS haustið 1997 67. fyrst fannst mér ekki gaman og saknaði Ellenar 68. ég hringdi í hana tvisvar á dag allt sumarið. 69. Við vorum búnar að ákveða að fara í MA saman 70. við ætluðum alltaf að vera saman. 71. Fljótlega kunni ég þó betur við mig og eignaðist vinkonur 72. við áttum samleið 8 saman öll árin í MS og erum núna í saumaklúbb. 73. Ég hef ekki kynnst mörgum eftir að ég fór í Háskóla 74. veit ekki afhverju það stafar, 75. Ég skemmti mér ekki mikið 76. finnst mjög gaman að hitta fólk og hafa gaman 77. og í raun finnst mér það skemmtilegra en að fara niður í bæ. 78. ég þarf ekki að drekka áfengi til að skemmta mér 79. ég byrjaði ekki að drekka fyrr en ég var 18 ára 80. Þá hætti fólk að suða í mér og ég gat tekið ákvörðunina sjálf 81. að vissu leyti gerði ég það samt til að falla inn í hópinn 82. allar vinkonur mínar drekka fyrir utan eina, hún býr á Akureyri. 83. Ég er með exem, það er húðsjúkdómur 84. þegar ég var lítil héldu krakkarnir að exem væri smitandi og neituðu að leiða mig í dansskólanum. 85. mér fannst það mjög leiðinlegt. 86. ég er líka með ofnæmi og má því ekki eiga gæludýr. 87. Mér finnst gaman að vera fín 88. samt finnst mér líka gott að vera í þægilegum fötum og heimilisleg. 89. ég er oft mjög ókvenleg, held ég hafi það frá pabba 90. alla vega sit ég alveg eins og hann. 91. Þegar ég var lítil átti ég þó ósk heitasta að vera strákur 92. núna er ég ánægð að vera stelpa 93. Ég er með brúnt hár 94. ég er með blágrængrá augu 95. ég er búin að gráta talsvert á meðan ég skrifaði þessi atriði 96. en ég get líka grenjað yfir Tarzan teiknimyndinni. 97. Ég held að ég verði seint fullkomlega ánægð með sjálfa mig 98. Einn af uppáhalds frændum mínum framdi sjálfsmorð 99. ég er ekki enn búin að fyrirgefa honum það, eigingirni af verstu gráðu. 100. ég sakna hans! Hafdís skrifaði klukkan 5:37 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||